Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Vörukaup koma upp um okkur

Í hvert skipiti sem við förum út í búð og verslum komum við upp um neysluhegðum okkar. Fyrirtækin sem við verslum hjá skrá hjá sér hvað við kaupum, hvenær við kaupum það, hversu mikið við kaupum o.s.frv. og það færist sífelt í aukana að fyrirtækin nýti sér þessar upplýsingar til þess að finna út hvaða okkur líkar, hvaða við þurfum og hvaða tilboð eru líklegust til að höfða til okkar. New York Times birti á dögunum grein þar sem meðal annars sagt er frá því hvernig verslunarkeðjan Target í Bandaríkjunum telur sig geta fundið út að kona sé ólétt útfrá því hvað hún verslar löngu áður en barnið er fætt.

Í samtali sem blaðamaður New York Times átti við Adrew Pole starfsmann í greiningardeild Target, áður en Target ákvaða að loka fyrir öll samskipti þeirra á milli, segir hann frá því hvernig Target reiknar út að kona sé ólétt jafnvel áður en nánast fjölskyldan og vinir vita af því.

Við komuna í Target er öllum viðskiptavinum úthlutað gesta-númer sem er tengt við greiðslukortið þeirra og nafn eða netfang. Inná þessi gesta-númer safnar svo Target öllum upplýsingum um viðskiptavininn, t.d. hvað hann kaupir, hvað hann skoða á heimasíðunni þeirra ásamt öðrum upplýsingum sem þeir kaupa frá þriðja aðila eins og hvar viðskiptavinurinn á heima, hvort viðkomandi sé giftur, trúaður, eigi börn o.s.frv.
Með því að nota allar þessar upplýsingar var ákveðið að fara yfir neysluhegðun allra þeirra kvenna sem höfðu skráð sig á barnavöru-lista hjá Target. Eftir fjölda prófana komu í ljós ca 25 vörur sem gáfu til kynna að umrædd kona ætti von á barni. Það sem meira er, þeir gátu einnig reiknað nokkurn vegin út hvenær væri sett og jafnvel hvaða kyn eftir því hvort konan keypti blátt eða bleikt teppi.
Target gat þá notað þessar upplýsingar og sent konunni tilboðsbæklinga sem höfðuðu beint til hennar með tilboðum á barnavörum og meðgöngufatnaði.

En þeir áttu þó eftir að komast að ókostum markaðherferðar sinnar. Dag einn mætti mjög reiður faðir í eina Target búðina og heimtaði að fá að tala við framkvæmdarstjórann. Dóttir hans, ennþá er í menntaskóla, fékk sendan auglýsingabækling frá Target þar sem þeir auglýstu barnaföt og rúm. Hann sakaði Target um að vera að hvetja dóttur sína til barneigna og var ekki sáttur. Famkvæmdarstjórinn baðst innilegrar afsökunar en hafði þó enga skýringu á málinu.
Nokkrum dögum seinna þegar framkvæmdarstjórinn hringir aftur í manninn til að biðjast aftur afsökunnar verður faðirinn hálf kjánalegur. Hann segist hafa talað við dóttur sína um málið og þá hafi komið í ljós ýmislegt sem hann hafi ekki vitað af, eins og dóttir hans sé í raun og veru ólétt. Hann þyrfti því biðjast afsökunar á látum sínum nokkrum dögum áður.

Eftir þetta atvik fóru starfmenn Target fljótlega að átta sig á því að fólki þætti óhugnarlegt hvað þeir vissu mikið fyrirfram og ákváðu því að breyta herferð sinni örlítið.
Í staðin fyrir að hafa aðeins tilboð á barnavörum og öðru tengdu meðgöngunni settu þeir einnig inn tilboð á slátturvélum, vínglösum og öðru algjörlega ótengdu meðgöngunni. Þannig lítur það út eins og öll tilboðin séu valin af handahófi og konan fær það ekki á tilfinninguna að það sé verið að njósna um hana og sér ekkert að því að nýta sér auglýst tilboð.

Hér er grein New York Times í heild fyrir þá sem hafa áhuga.


Mynd augnabliksins

img_8674.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning