Vísindavefur HÍ 10 ára.

Vísindavefur Háskóla Íslands fagnar 10 ára afmæli sínu í dag. Vefurinn fjallar um öll vísindi, hvaða nafni sem þau kunna að ganga undir, allt frá stjörnufræði til handrita.
Á vísindavefnum geta þekkingarþyrstir einstaklingar fundið svör við allskonar spurningum um allt milli himins og jarðar, ásamt því að leggja fram spurningar um allt sem búast má við að starfsmenn Háskólans og stuðningsmenn vefsins geti svarað og ef þeir geta ekki svarað því þá gera þeir sitt besta til að finna svarið.
Vefurinn var stofnaður 29.janúar árið 2000. Þá opnaði forseti Íslands vefsetrið og var rektor viðstaddur ásamt nemendum úr Grandaskóla og Fjölbrautaskóla Suðurlands sem sendu strax inn spurningar. Fyrst í stað var Vísindavefurinn eitt af verkefnum HÍ í verkefninu Reykjavík – menningarborg Evrópu árið 2000. En áhugi almennings var meiri en gert hafði verið ráð fyrir og því fagnar vefurinn nú 10 ára afmæli þótt honum hafði upphaflega eingöngu verið ætlað að starfa í eitt ár.
Í tilefni dagsins verður haldið málþing um vísindamiðlun í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins sem fer fram frá klukkan 14-16.
Vefinn má finna hér http://www.visindavefur.is/
KBS


