Vinsældir Of Monsters and Men gríðarlegar

Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur verið að gera góða hluti hér á landi sem og erlendis á síðustu misserum.
Platan þeirra My head is an Animal kom út í Bandaríkjunum 3.apríl og er í 6. sæti á Billboard listanum þar, en til dæmis tveimur sætum neðar er að finna nýjstu plötu Madonnu. Platan hefur selst í ríflega 55.000 eintökum á rúmlega einni viku í Bandaríkjunum.
Hljómsveitin hefur verið á tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum og frá 14. mars hefur hún spilað á næstum 20 stöðum þar og í Kanada og alltaf seldist uppá tónleikana. Þau munu svo túra í Evrópu fram á vor en nú þegar er uppselt á tónleika þeirra í Amsterdam, Brussel, Berlín, Köln og London. Í Evróputúrnum munu þau til dæmis koma fram á tónleikum með Coldplay og Incubus.
„Þetta er búið að gerast svo hratt að maður þarf að klípa sig í handlegginn þegar heim er komið,“ segir Arnar Rósenkranz Hilmarsson trymbill og slakverksleikari hljómsveitarinnar.
„Við skrifuðum undir þennan samning við Universal og vissum í sjálfu sér lítið um það hvað við vorum að fara út í. Þetta er búið að vera erfitt en alveg ótrúlega gaman. Nú höfum við séð hvernig þetta virkar og ég myndi segja að við séum meira en tilbúin til að fara í þetta af fullum krafti. Þetta er þegar öllu er á botninn hvolft fyrst og fremst gaman – sérstaklega þegar maður sér alla þessa uppskeru,“ segir Arnar.



