Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Skóli og heimaskóli

Heimaskóli
Heimaskóli
Ég datt niður á sjónvarpsþátt í dag sem heitir Dr. Phil og fjallaði hann um hvort að það væri rétt að leyfa börnum að vera í heimaskóla eða ekki í Bandaríkjunum og hverjar afleiðingarnar af því gæti verið. Voru margir foreldrar sammála því að þau vildu ekki leyfa börnum sínum að ganga í almenningsskóla, gáfu þau mismunandi ástæður fyrir því. En meðal annars sögðu þau að skólinn virkaði eins og fangelsi fyrir börnin, og sumum fannst vera eitthvað kommúnistalegt við skólann og svo voru aðrir sem voru hrædd við leyfa börnum sínum að fara skólann af hræðslu við það að börnin yrðu skotin af samnemendum sínum eða kennurum. Það kom ein stúlka fram í þættinum sem hafði verið í heimaskóla og hún sagði frá því að hún hefði frekar viljað að vera í almenningsskóla þar sem hún hefði misst af öllu félagslífi og eignaðist þar af leiðandi nánast enga vini.

Ég ætla nú ekki að fara bera saman Ísland og Bandaríkin, það tæki heila bók að fylla það út. En ólíkt Íslandi þá eru Bandaríkin öllu hættulegri og það er mun meira af fólki þar heldur en hér á Íslandi. Enn fremur ætla ég að taka fram að ég á engin börn svo að ég á kannski engan rétt á að vera fjalla um þetta málefni, en ég ætla samt að gera það.

Ég myndi ekki samþykkja það að mitt barn væri í heimaskóla aðallega vegna þess að það er að gerast svo mikið félagslíf í skólum í dag sem að barnið myndi missa af, eins og til dæmis skólaböllin og ferðalögin. Svo fær barnið ákveðin sjálfsaga frá kennurum.

En ef að það ætti að fara að hugleiða heimaskóla hér á Íslandi þá væri margt sem að þyrfti að huga að, eins og til dæmis hvaða kröfur foreldrarnir þyrftu að uppfylla og hvernig ætti að meta námið sem hefði verið tekið í heimaskólanum. Hins vegar þá finnst mér bekkirnir vera alltof stórir miðað við á hvern kennara. Ef að bekkirnir væru smærri þá gætu kennararnir veitt hverjum nemanda meiri athygli.

Það  væri margt sem að þyrfti að að skoða og þá yrði að bera hag barnanna að brjósti og hugsa um hvað væri best fyrir þau og yrðu auðvitað margir sem að hefðu einhverjar skoðanir á þessum málum ef að þessi staða kæmi upp.
Ég yrði ekki fylgjandi þessu, nema þá í fyrsta lagi að skoða málið betur og setja kröfur sem að foreldarnir yrðu að fylgja eftir.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

img_0446.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 174200

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning