Hlutkesti felldi Hlyn Hallsson

Hlynur Hallsson, myndlistarmaður frá Akureyri, mátti bíta í það súra epli að tapa kosningu um áframhaldandi formannstign hjá Samtökum íslenskra myndlistarmanna á hlutkesti í vikunni.
Hlynur hefur gegnt stöðu formanns SÍM í eitt ár en um launað starf er að ræða, hálft stöðugildi. Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarkona bauð sig fram gegn honum og reyndist baráttan hnífjöfn. Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum í kjölfar kosningar reyndist hvor frambjóðandinn um sig hafa fengið 136 atkvæði. Þá var gripið til þess óyndisúrræðis að varpa hlutkesti og eins og fyrr segir tapaði Hlynur og missti þar með formannstignina.Þrátt fyrir óheppnina er eftir því tekið hve vel Hlynur hefur tekið ósigrinum og hefur verið haft á orði að aðrir mættu taka æðruleysi myndlistarmannsins akureyrska sér til fyrirmyndar.


