Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Niðurskurður til menningarmála á Akureyri gagnrýndur

,,Sem fyrr hafa sumir stjórnmálamenn meiri áhuga á að byggja sér minnisvarða heldur en að styðja grasrótina og hinar skapandi greinar” eru lokaorð greinar Hlyns Hallsonar myndlistarmanns, sem hann skrifaði og birti á vefritinu Smugunni í morgun.

Í greininni gagnrýnir hann aðgerðir Akureyrarbæjar til niðurskurðar, til að mynda að nú séu aðeins veitt starfslaun fyrir einn listamann í stað tveggja áður og að þau laun hafi ekki hækkað síðustu tíu árin. Listafólk og áhugafólk um menningu bæjarins virðist almennt vera á sama bandi og Hlynur, nokkuð uggandi yfir fréttum af auknum niðurskurði ásamt brotthvarfi staða á borð við Friðrik fimmta og Græna Hattinn.


Fyrr í vikunni var aðalfundur Myndlistafélags Akureyrar haldinn og þar var rætt um mikilvægi þess að myndlistarmenn standi saman að gerð stefnumótunar og menningarstefnu fyrir myndlistarfélagið vegna hagsmunamála félagsmanna tengdum Akureyrarbæ. 

Grein Hlyns má finna á vefritinu Smugunni.

Síða Myndlistarfélagsins er mynd.blog.is.


-Karen
Mynd fengin af vef Akureyrarbæjar.




Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

img_0500.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning