Dalíur blómstra í borginni

Eins og áður hefur verið nefnt hér á Landpóstinum eru tvær listakonur frá Akureyri þær
Dagrún Matthíasdóttir og Sigurlín M. Grétarsdóttir með myndlistasýningu í Höfuðborginni.
Ég er stödd í Borginni og brá mér á sýninguna í dag.
Þær eru með verk sín í sín hverjum salnum, frekar litlir salir, Dagrún í salnum til vinstri og Lína í
salnum til hægri. Á Akureyri reka þær saman DaLí Gallery sem eins og sést kannski er dregið af nöfnum þeirra og því kalla
þær sig oft DaLí-urnar, hér er þetta flott alveg hægt að lesa þær frá hægri til vinstri.
Lína Kallar sína sýningu Tilbrigði, en hún sýnir verk sem unnin eru með blandaðri tækni þar sem hún leikur sér bæði með litina og formin og áferðina. Efnið sem hún notar eru acryl, lakk og pappír en hún er líka með hrosshár sem sums staðar ná alveg út úr myndunum og þau eru í ýmsum litum.
Verkin eru í fallega bláum litum, “litasétteringum”, grænum og fallega bleikum eða fjölubláum.
Lína hefur verið að þróa þessi verk í rúm tvö ár og hún túlkar verkin ekki neitt frekar, en hún talar um að sérhvert verk sé “fæðing” miserfið í hvert sinn og lætur áhorfandanum í té að upplífa á sinn hátt hvert eitt verk.
Dagrún er með níu litlar myndir af mat í ýmsum myndum, helst þó hefðbuninn, mat, eins og kjötsúpu, svið, svo er ein frekar í nútímanum, kjúklingur og kartöflur, harðfisk og rauðleita kjötsúpu í efri röðinni, í þeirri neðri eru myndir af harðfiski, hrognum, kartöflur og rauðu skornu kjöti, senni lega hangikjöti, svo eru þrjá litlar myndir af slátri. Stór mynd af kjötsúpu er fyrir endanum og síðan skemmtileg mynd að tveimur sviðahausum með trúðahúfuur og loks stór mynd, tvisvar sinnum stærri af slátri, bæði niðursneiddu sem gæti verið á þorrabakkanum (nú um sumarmál!) og líka eins og þeir koma fyrir af skepnunni, bara ösköp venjulegir keppir.
Dagrún segist hafa mikið yndi að eldamensku og henni sé alltaf mál að mála og þá ratar maturinn oft inn í
málverkin, eins og hún segir sjálf að hún máli þann mat sem “dúkkar upp á borð” hjá henni, næstum
orðaleikur, dúkkar upp á borð og svo dúkar maður borð þegar á að fara borða þennan holla og góða mat. Hún segir
að maturinn sem hún er að mála sé bæði fallegur, formin og litirnir heilla hana og síðast en ekki síst er hann svo góður á
bragðið. enda heitir hennar sýning Matarlist.
Endilega þeir sem eru á ferðinni hér syðra ættu ekki að láta sýninguna fram hjá sér fara og kíkja inn í þessa litlu en skemmtilegu sali í gömlu húsi við Laugaveginn.
Nýlega voru félagar í Myndlistafélaginu á Akuryri með samsýningu, nokkurs konar mót félagsmanna, en þetta var fyrsta skipulagða samsýninga félagsins og bar hún nafnið Kappar og ofurhetjur. Þangað segist Dagrún hafa arkað stolt með slátrið sitt til að sýna þar með öllu því góða listafólki sem þar sýndi.
Dagrún tók líka þátt í sýningunni í sumar fram í og um alla Eyjafjarðarsveit sem bar nafnið Staðfulg Farfugl. Þar var hún Staðfugl í byrjun og segist svo hafa víkkað út sjóndeildarhriginn og gerst Farfugl, en þótt hún reyni að vera farfugl þá er hún samt alltaf sami staðfuglinn sem gerir sér hreiður hvar sé hún er og þar brýst hún út úr skelinni og flýgur á ný mið en ber uppruna sinn alltaf með sér hvar sem hún lendir. Verkið hennar hét SKURN.
Dagrún er í hópi sem nefnist GRÁLIST og ellefu meðlimir þeirra tóku líka flugið inn í Eyjafjörð og voru með verk sem hét VARP.
Í fyrra sumar var hún með málverkasýningu í sláturhúsinu við Odda á Þingeyri á Dýrafjarðardögum til heiðurs Búffu búfræðingi, sem hét Gestaboð Búffu þar voru myndir af sviðahausum og sennilega kjötsúpa einnig.
Í fyrra var hlaupár og þá tók Dagrún þátt í Hlaupárshreingjörningi með Önnu Richardsdóttur sem hún nefndi KUKL. Hún átti að hreingjöra allt það sem óx í eldhúsi hennar í febrúar mánuði og hún sauð súpu allan mánuðinn og fór síðan með hana úti í garð á sjálfan hlaupársdag 29. febrúar og urðaði han þar.
Í janúar í fyrra var Dagrún með sýningu sem hún kallaði “Lífið er saltfiskur”. Það var svo kallað Veggverk og var bæði á húsgaflinum á vesturhlið Strandgötu 17 á Akureyri og eins í DALÍ – galleríinu við Brekkugötu.
Í ágúst 2007 var Dagrún með sína fyrstu einkasýningu á Kaffi Karólínu í Gilinu á Akureyri og sú sýning nefndist SÚPUR. Hún talar um að hún hafi fengið þar svo góðar og matarmiklar súpur í hádeginu og hafi oft verið aðalmáltíðin yfir daginn fyrsta veturinn sem hún bjó á Akureyri og því hafi henni fundist tilvalið að gera og sýna þar súpur. Enda segir hún að súpur séu skemmtileg og fjölbreytt matarmenning sem séu alls staðar í heiminum og það megi jafnvel gera súpu nánast úr hverju sem er. Síðan fer þessi sama súpusýning suður á land og voru sýndar frá 13. sept til 11. okt á Vor Café Bistro á Laugaarvegi 24 í Borginni.
Þarna sést á allri þessari upptalningu að Dagrún hefur þó ekki sé meira sagt mikinn á huga á alls konar mat, bæði kjötsúpum og fleiri súpum, harðfiski og saltfiski, sviðum og slátri svo að eitthvað sé nefnt. Það hljóta vera góðir málsverðir á dúkuðu borðinu hennar heima hjá henni.!


