Fólk í fréttum - fimmtudagur 05.apríl 2012 17:06 - -
Athugasemdir (0)

Amanda Edwards/WireImage; AP
Ashton Kutcher mun koma til með að leika hlutverk Steve Jobs í væntanlegri kvikmynd um ævi hans.
Myndin mun bera nafnið Jobs og fjalla um ævi tölvurisans Steve Jobs, frá hippaárum hans og hvernig hann svo varð að einu stærsta nafni í
tölvuheiminum. Tökur á myndinni eiga að hefjast í maí og leikstjóri mun vera Joshua Michael Stern.
Önnur mynd um ævi Steve Jobs mun einnig vera í burðarliðnum. Sú mynd mun vera byggð á bók Walter Isaacson um ævi Steve Jobs. Sony tryggði
sér kvikmyndaréttinn á bókinni stuttu eftir að hún kom út.
Steve Jobs hefur áður verið leikinn á hvíta tjaldin en þá var það leikarinn Noah Wyle sem lék hann í myndinni Pirates of Silicon
Valley.