Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Vatnaveröld uppgvötuð

GJ1214b
GJ1214b
Talandi um gufuböð. Upplýsingar sem Hubble sjónaukinn safnaði nýverið gefa til kynna að pláneta sem gengur þröngan hring um stjörnu sína í 40 ljósára fjarlægð frá jörðu, sé vatnaveröld með þykku og gufukenndu andrúmslofti. Fyrr gerðar athuganir á GJ1214b eins og plánetan er nefnd, sem var fyrst uppgvötuð árið 2009 og hefur yfirborðshita um 230°C, gátu ekki útilokað þann möguleika að andrúmsloft plánetunar væri einungis þokukennt í stað þess að vera gufukennt.

Nýjar athuganir sýna hins vegar framm á að andrúmsloftið sendi frá sér stöðugt ljós yfir breitt svið bylgjulengda, sem gefur sterklega til kynna að um sé að ræða andrúmsloft sem er mestu samansett úr vatnsgufu, vegna þess að þokukennt andrúmsloft væri gagnsærra gagnvart innrauðu ljósi en sýnilegra bylgjulengda.

Á meðan sólkerfið okkar inniheldur plánetur úr grjóti, eins og Venus og Jörð, gas risa líkt og Júpiter og Satúrnus, eða ísklumpa eins og Plútó, þá er GJ1214b fyrsta uppgvötaða plánetan sem er samansett að mestu úr vatni í stað grjóts.

Vísindamenn áættla að GJ1214b sé um 2.7 sinnum þvermál jarðar í stærð og vigti um það bil sjö sinnum meira. Með það í huga að þéttleiki plánetunar er um 2 grömm á hvern rúm sentimetra, borið saman við þéttleika vatnsins sem er 1 gramm á hvern rúm sentimetra og að meðaltal þéttleika jarðar er um 5,5 grömm á hvern rúm sentimetra.


Mynd augnabliksins

20110212-img_7652-6.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning