Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Vantalin umferð um Norðfjarðargöng

Teljari vegagerðarinnar sem telur umferð um Oddskarð telur ekki alla umferð yfir skarðið og þá sem fara í gegnum göngin. 

Starfsmaður skíðasvæðisins í Oddskarði tók eftir þessu í vetur þegar hann sá að ferðir hans frá Neskaupstað til skíðasvæðisins og heim aftur hafi ekki verið taldar á Textavarpi sjónvarpsins. Teljari vegagerðarinnar er á Háhlíðarhorni rétt ofan við Eskifjörð, sem er töluvert neðan við skíðamiðstöðina. Því má ætla að vetrarumferðin sé vantalin um þann fjölda Norðfirðinga sem sækja skíðasvæðið. Það er undarlegt að teljarinn sem mælir umferð um oddskarð sé ekki í göngunum eða á stað þar sem þessi umferð mælist. Ef að 30 bílum er ekið frá Norðfirði á skíðasvæðið, þá eru 60 ferðar ótaldar þann daginn á teljaranum. En á móti kemur að ef 30 bílar koma frá Eskifirði á skíði eru 60 ferðar þann daginn sem að fara aldrei um göngin. 



Mynd augnabliksins

20110224-_mg_8342-1.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning