Unglingum selt tóbak á 7 sölustöðum í Hafnarfirði

Könnun sem forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar stóð fyrir meðal sölustaða tóbaks þar í bæ leiddi í ljós að unglingar voru afgreiddir með tóbak á 7 sölustöðum af 22 mögulegum, eða í 32% tilvika.
Í könnuninni fóru tveir unglingar inn á sölustaði (en sölustaðir með vínveitingaleyfi voru ekki með í könnuninni) undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. Þeir sölustaðir sem seldu unglingunum tóbak fá senda ábendingu frá forvarnafulltrúa og eiga vona á áminningu eins og lög um tóbaksvarnir kveða á um.
Geir Bjarnason, forvarnafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir að síðustu misseri hafi söluaðilar verið að setja sér skýrari reglur um að aldurstakmörk tóbakssölu séu virt. Jafnframt segir hann niðurstöðu þessarar könnunar þá bestu í þrjú ár og búast megi við því að fjölgun kannana haldi söluaðilum við efnið og tryggi að aldurstakmarki sé framfylgt. Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hafa gert sérstakt samkomulag við forvarnarnefnd sem miðar að því að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna.


