Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Týndur strákur finnur móður sína með hjálp Google Earth

Indverskur strákur að nafni Saroo týndi fjölskyldu sinni árið 1986, aðeins fimm ára gamall, en fann hana aftur 25 árum síðar með því að nota Google Earth. 

Saroo og bróðir hans unnu sem sóparar í lestum. Þeir bræður voru að vinna saman eina nóttina þegar Saroo verður mjög þreyttur og ákveður að setjast niður á lestarstöðinni sem endaði á því að hann sofnaði. Hann hélt að bróðir sinn myndi koma tilbaka og vekja hann en þegar hann vaknaði sá hann bróður sinn hvergi. Saroo sá lest fyrir framan sig og hugsaði með sér að bróðir hans hlyti að vera í þeirri lest svo hann ákvað að fara um borð. Hann fann ekki bróður sinn í lestinni. Saroo sofnaði aftur og vaknaði í miklu áfalli 14 tímum seinna. Lestin hafði stoppað í Calcutta, sem er þriðja stærsta borg Indlands og þekkt fyrir fátækrahverfin sín. Saroo vissi ekki hvar hann var staddur og varð þar af leiðandi mjög skelfdur af öllu sem hafði staðið á síðasta sólarhringinn sem síðar breytti lífi hans til frambúðar. Hann sagði að staðurinn væri mjög ógnvekjandi og ekki væri hægt að treysta neinum. Hann lærði þó fljótt að bjarga sér sjálfur og gerðist bettlari eins og mörg önnur börn í Calcutta. Á endanum komst Saroo af götunni og var tekinn inná munaðarleysingjarhæli og seinna meir var hann ættleiddur af hjónum frá Ástralíu.

Saroo settist niður og líkaði vel á nýja heimilinu sínu, en eftir því sem hann varð eldri fékk hann löngun til þess að finna fjölskyldu sína í Indlandi. Vandamálið var hinsvegar það að hann mundi ekki nafnið á staðnum sem hann ólst upp á. Eina sem hann hafði voru minningar og byrjaði hann að nota Google Earth til að leita af staðnum. Hann margfaldaði tímann sem hann var í lestinni, sem voru 14 klukkustundir við hraðann á lestinni og fékk hann út vegalengdina sem var um það bil 1200 km. Fljótlega komst hann að því að staðurinn sem hann ólst upp á var Khandwa þar sem hann gat séð myndir af þeim stað og fóru minningar um staðinn að skjótast upp í kollinn á honum.  Saroo fór á staðinn snemma á þessu ári og á endanum fann hann gamla hverfið sitt og fjölskyldu sína. Þegar hann hitti móður sína eftir allan þennan tíma þekkti hann hana ekki í fyrstu. Saroo komst svo síðar að því að bróðir hans dó í lestarslysi mánuði eftir að hann týndist.

Saroo segir að hann hafi óskað eftir þessari stundu í mörg ár og sé nú í miklu sambandi við indversku fjölskyldu sína.

Kvikmyndaframleiðendur og útgefendur hafa mikinn áhuga á þessari ótrúlegu sögu. 



Mynd augnabliksins

img_8661.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning