Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Tvær stórmyndir teknar á Íslandi

Tvær bandarískar stórmyndir verða teknar hér á landi í sumar. 

Miklar gjaldeyristekjur eru að fá af slíkum verkefnum, en allt uppí hundruðum milljóna króna. Þriðja myndin gæti bæst við síðar á árinu eða á næsta ári. Tökulið Game of Thrones sem var hér seint á síðasta ári kemur einnig á nýjan leik og nokkur verkefni frá Evrópu.

Í júní munu koma 200 manna tökulið til landsins sem munu vinna að myndinni Oblivon sem skartar meðal annars Tom Cruise í aðalhlutverki. Í haust mun svo álíka stórt tökulið koma vegna myndarinnar The secret life of Walter Mitty sem stórleikarinn Ben Stiller vinnur að. Tökurnar munu til dæmis fara fram í Reykjavík, á Seyðisfirði og við Höfn í Hornarfirði.

Einar Tómasson, verkefnastjóri segir endurgreiðslurnar vegna kostnaðar á svona stórum verkefnum skipta öllu máli. Þær nema um fimmtungi af kostnaði, en ríkissjóður borgaði til dæmis hundrað milljónir króna til baka í fyrra vegna myndar Ridleys Scott. 



Mynd augnabliksins

_mg_7764.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning