Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Tölvutæknin við söguleg tímamót

Quantum computing
Quantum computing
Vísindamenn hjá IBM munu kynna byltingarkenndar niðurstöður sínar seinna í dag er varða mikilvægt skref í þróun skammtatölvunar. Talið er að vísindamenn hjá IBM hafi fundið leið til að vinna með afar viðkvæmar agnir sem í daglegu máli tölvuheimsins eru kallaðir skammtabitar.

Helsti eiginleiki skammtölvunar yrði fólgin í þeim eiginleikum að geta nálgast allar þær upplýsingar sem til eru fyrir hendi samstundis, með því að skilja upplýsingar í skammtabitum sem eru til í öllum mögulegum ástöndum og eru ekki einskorðuð við virk eða óvirk, heldur allt þar á milli. Öfugt við hefðbundnar tölvur sem skilja upplýsingar í bætum sem miðla upplýsingum í gegnum tvenndarástand sitt - þau eru annaðhvort virk eða óvirk. 

Það magn upplýsinga sem 250 skammtabita tölva gæti geymt getur því auðveldlega verið meira en allar agnir alheimsins. 
Uppgvötunin er talin marka tímamót í tækniþróun mannkyns og myndi kalla á endurskoðun á nær öllum innviðum samfélagsins. Til dæmis þyrfti að endurskoða öll lykilorð veraldar enda gæti skammtatölvan sannreynt alla möguleika á innan við sekúndu.



Mynd augnabliksins

20110224-_mg_8360-5.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning