Tíu nemendur teknir inn í leikaranám LHÍ

Þann 24.janúar var tilkynnt að inntökuferli í nám á leikarabraut við Listaháskóla Íslands væri lokið og að 10 nemendum hefði verið boðin skólavist næsta haust. Landpósturinn náði tali af Katrínu Halldóru Sigurðardóttur sem fékk inngöngu í námið þetta árið ásamt níu öðrum en segist hún þó þekkja það vel að vera ekki valin inn í skólann því að þetta hafi verið hennar þriðja tilraun.
"Það að vera ein af 10 sem var boðin skólavist í LHÍ var æðislegt og mikið spennufall. Svo æðislegt að ég fékk blóðnasir og flís í tána ég hoppaði svo mikið þegar ég opnaði póstinn. „
Katrín er ekki ókunnug listunum og aðspurð hvað hún hafi verið að taka sér fyrir hendur síðastliðin ár í tengslum við leiklistina svaraði hún „ég hef verið dugleg við að taka að mér allskonar verkefni sem að gaman hefur verið að taka þátt í jafnframt því að það hefur verið mjög góður "skóli" útaf fyrir sig fyrir mig. Eitt sumarið vann ég hjá Götuleikhúsinu í RVK, svo hef ég leikið í þremur sýningum hjá Stúdentaleikhúsinu, verið virkur meðlimur í spunahópnum Stutt í spunann, leikið á sýningu á Art Fart, ég lék í nokkrum auglýsingum í sumar og sótti dansnámskeið. Svo er ég menntuð söngkona, fór út til Danmerkur ´09 í söngnám og svo er ég á jazz- og rokkbraut í Fíh. Bara svona allskonar og ekki neitt „
Framtíðarplön Katrínar eru svo að vera í skólanum næstu 3-4 árin og njóta þess að takast á við námið. Einnig ætlar hún að taka að sér og/eða skapa sjálf ólík verkefni og eins og sést hér í upptalningunni að ofan vantar hana ekki reynsluna á þessu sviði.
„Ég held að svo verði það bara að koma í ljós hvað verður en fyrst og fremst ætla ég að hafa gaman af því að vera til.“


