Þurfum að taka inn þrefalt til fjórfalt magn af D vítamíni

Í bókinni er einnig bent á að D vítamínskortur geti einnig orsakað bakverki í mjóbaki.
Um 75% íbúa á norðurhveli þjást af D vítamínskorti. Fólk notar mikla sólarvörn vegna herferða gegn húðkrabbameini. Minni neysla á feitum fiski og fiskafurðum eins og lifur. En fyrst of fremst er það vegna þess að áhrif sólarinnar eru minni á norðlægum breiddargráðum.
Venjuleg manneskja getur framleitt allt sitt D vítamín sjálf sé líkaminn óvarinn í sól í um 20 mínútur daglega. Þegar talað er um óvarinn er talað um að nota ekki sólarvörn eða önnur krem sem hylja húðina. Best er að vera úti þegar sólin er hæst á himni. Líkaminn þarf nokkrar vikur til að framleiða allt það D vítamínmagn sem hann þarf á ársgrundvelli.
Sveinbjörg Halldórsdóttir Næringarfræðingur hjá Actavis bendir fólki á að láta mæla D vítamín í blóði hjá lækni til að komast að því hvort að vanti upp á D vítamínbyrgðir líkamans, ef svo er, er gott að fara eftir ráðleggingum Holick í bókinni The vitamin D solution þar sem D vítamín skammtarnir eru þrefalt til fjórfalt hærri en ráðlagður dagskammtur lýðheilsustöðvar.
Holick mælir með þessum dagskömmtum.
0-1 árs 400- 1000 a.e mest 2000 a.e
1-12 ára 1000-2000 a.e mest 5000 a.e
13 ára og uppúr 1500-2000 a.e mest 10000 a.e
Ófrískar konur 1400 – 2000 a.e mest 10000 a.e
Með barn á brjósti 2000-4000 a.e mest 10000 a.e
Of feitir einstaklingar sem eru með yfir 30 BMI þurfa tvöfalt til þrefalt magn mest 10000 a.e
Lýðheilsustöð mælir með að fólk taki 400 a.e daglega , en eldra fólk taki um 600 a.e einingar daglega. En viðmið lýðheilsustöðvar eru mun lægri en mælt er með í bókinni.


