Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Þjóðargersemum bjargað úr Höfða

Listmunir bornir út úr Höfða fyrr í kvöld<br /><small>(mynd: Daníel Sigurður)</small>
Listmunir bornir út úr Höfða fyrr í kvöld
(mynd: Daníel Sigurður)
Hið sögufræga hús Höfði við Höfðatún bættist í hóp þeirra gamalla húsa í kvöld sem kviknað hefur í en húsið var byggt árið 1909. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og var fjölmennt lið slökkviliðsmanna og lögreglu á svæðinu ásamt sjálfboðaliðum, sem báru meðal annars út þá dýrmætu og óbætanlegu listmunni sem er í húsinu. Nú rétt í þessu hefur slökkviliðið náð tökum á eldinum en að öllum líkindum hafa veðurguðirnir rétt Slökkviliðsmönnum hjálparhönd við baráttuna.

Tilkynning um eldinn barst neyðarlínu rétt fyrir kl 18 í kvöld og voru fyrstu bílar mættir á staðinn stuttu seinna. Þegar blaðamaður landpóstsins kom á vettvang var verið að bera út listmuni úr húsinu og mátti m.a. sjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, borgarstjóra og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, forseta borgastjórnar, aðstoða viðbragsaðila og aðra við verðmætabjörgunina. Meðal listmuna voru óteljandi málverk, postulínssafn, stólar og síðan fánar Bandaríkjanna og Sovétríkjana, en það er minnisvarði sem þjóðirnar skildu eftir sig til að minnast sögufræga fund Reagan og Gorbachev árið 1986.

Í samtali við Morgunblaðið nú fyrir stundu sagði Vilhjálmur að búið væri að bjarga öllum málverkum og öðru úr húsinu og að litlar sýnilegar skemmtir séu annars á húsinu nema efst í rjáfrinu. Listmunir voru síðar fluttir á lóð húsins og þaðan í sendiferðabíla, en mikil rigning var í Reykjavík á þeim tíma.

Það má því tala um lán í óláni að hægt hafi verið að bjarga þessum þjóðargersemum og sögulegu listmuni sem fyrir voru. Þar að auki að húsið sjálft hafi sloppið við sömu örlög og húsin á horni Austurstrætis og Lækjargötu 18. apríl 2007, en þau brunnu öll til kaldra kola.


Mynd augnabliksins

img_8677.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning