Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Þetta eru nú meiri Ljótu hálfvitarnir

Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir verða með tónleika á Græna Hattinum fyrstu helgina í febrúar. Hljómsveitin mun vera með tónleika bæði föstudagskvöldið 5. febrúar og laugardagskvöldið 6. febrúar. Gamanið byrjar kl. 22 og kostar einungis litlar 1500 krónur inn. Hálfvitarnir ætla að frumflytja nokkur lög sem verða á nýju plötunni þeirra svo enginn hálfvitavinur ætti að láta sig vanta.


Ljótu hálfvitarnir er skemmtilega öðruvísi hljómsveit.  Þeir spila mjög svo fjörug lög og leggja mikla áherslu á skemmtanagildi textanna.  Hljóðfæraskipan hljómsveitarinnar er frekar óhefðbundin þar sem hver meðlimur spilar á  hin ýmsu hljóðfæri og er sjaldgæft að sami maður spili á sama hljóðfæri tvö lög í röð.  Þeir nota einnig ýmis furðuleg hljóðfæri eins og til dæmis balalæka, mandólín, melódíku, fagott , asnakjálka o.fl.

Hljómsveitin er búin að vera til í núverandi mynd síðan árið 2006. Þá sameinuðust Ljótu hálfvitarnir hljómsveitinni Ripp, Rapp og Garfunkel undir nafni þeirra fyrrnefndu og hefur hún blómstrað síðan.

Hlómsveitin samanstendur af 9 meðlimum, þeim Þorgeiri Tryggvasyni heimspeking, Ármanni Guðmundssyni fyrrverandi vitaverði, Sævari Sigurgeirssyni “ Gentle Giant”, Oddi Bjarna Þorkelssyni orkubolta, Eggerti Hilmarssyni húsvíking, Guðmundi Svafarssyni pönkara, Snæbirni Ragnarssyni harmóníkusnilling, Arngrími Arnarsyni hláturmylda og Baldri Ragnarssyni unglambi. 

Hægt er að kynna sér hljómsveitina frekar á heimsíðu þeirra.


Heimild: www.ljotuhaflvitarnir.is




Mynd augnabliksins

p9301053.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning