Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

The Watchmen

Kvikmyndin Watchmen er frumsýnd í kvöld í sambíóunum. Samkvæmt starfsfólki sambíóanna má búast við því að mikið Watchmen-æði verði á næstunni, en mikið hefur verið selt af miðum í forsölu og mikill spenningur virðist hafa myndast fyrir útkomu þessarar myndar.  Myndin er byggð á geysivinsælum myndasögum eftir Alan Moore, oft kallaður "meistarinn" af myndasöguáhugafólki. Hann hefur meðal annars gert sögur um batman og er skapari V for Vandetta, að vísu vill hann ekkert með myndina hafa og ætlar sér ekki að sjá hana þar sem að hann hefur lýst því yfir að sagan sé ókvikmyndunarhæf. Hún hafi verið gerð með það að leiðarljósi að skapa eitthvað sem ekki er hægt að lýsa í bókum eða kvikmyndum.
Myndin eða sagan gerist árið 1985 þar sem ofurhetjur eru til í alvörunni. Nixon er ennþá forseti Bandaríkjanna. Víetnamstríðið hafði unnist en spennan á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna er í hámarki og þriðja heimsstyrjöldin er við það að bresta á. Réttlætishetjan Rorschach rannsakar dauða fyrrum hetjunnar The Comedian, og því nær sem hann og fyrrum félagar hans úr Watchmenhópnum dragast að sannleikanum er það deginum ljósara að heimsbyggðin er í hættu.
Myndin er mjög flott gerð og er algjört augnakonfekt. Sagan er frekar ruglingsleg og ég var lengi að átta mig á því hvað væri í gangi, hvert plottið væri. Hún er mjög löng, um það bil þrír klukkutímar og hefði vel verið hægt að stytta hana til munar án þess að það skaðaði nokkuð. Frammistaða leikara er svona la la. Með að við allar þær snilldar teiknimyndahetjumyndir sem hafa komið út á hvíta tjaldið á síðustu misserum hlakkaði mig mikið til að sjá hana, en því miður fyrir mitt leyti þá olli hún vonbrigðum.


Mynd augnabliksins

p9301060.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 11
Samtals: 174393

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning