The Watchmen

Myndin eða sagan gerist árið 1985 þar sem ofurhetjur eru til í alvörunni. Nixon er ennþá forseti Bandaríkjanna. Víetnamstríðið hafði unnist en spennan á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna er í hámarki og þriðja heimsstyrjöldin er við það að bresta á. Réttlætishetjan Rorschach rannsakar dauða fyrrum hetjunnar The Comedian, og því nær sem hann og fyrrum félagar hans úr Watchmenhópnum dragast að sannleikanum er það deginum ljósara að heimsbyggðin er í hættu.
Myndin er mjög flott gerð og er algjört augnakonfekt. Sagan er frekar ruglingsleg og ég var lengi að átta mig á því hvað væri í gangi, hvert plottið væri. Hún er mjög löng, um það bil þrír klukkutímar og hefði vel verið hægt að stytta hana til munar án þess að það skaðaði nokkuð. Frammistaða leikara er svona la la. Með að við allar þær snilldar teiknimyndahetjumyndir sem hafa komið út á hvíta tjaldið á síðustu misserum hlakkaði mig mikið til að sjá hana, en því miður fyrir mitt leyti þá olli hún vonbrigðum.


