Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, skuluð þér og þeim gjöra

Svo virðist sem einhverjir nemendur eigi í erfiðleikum með að sætta sig við boð og bönn skólans og sýna starfsfólki ítrekað ókurteisi og óvirðingu. Mér fannst samt skrýtið á þessum fundi hvað margir foreldrar voru tilbúnir að skella allri skuldinni (ábyrgðinni) á kennarana. Að sumra mati eru kennararnir ekki nógu strangir og duglegir við að kenna og halda uppi aga í sínum kennslustofum, sem getur svo sem alveg verið rétt en hvernig er hægt að ætlast til þess að kennari haldi uppi aga þegar nemendurnir bera enga virðingu fyrir honum af því að foreldrarnir gera það ekki og láta það óspart í ljós í návist nemandans? Er það ekki okkar foreldranna að kenna börnunum okkar að sýna reglum og einstaklingum samfélagsins virðingu og kenna þeim hlýðni. Grunnkennsla á þessu sviði hlýtur að fara fram hjá okkur. Við verðum líka að vera börnunum okkar góðar fyrirmyndir og sýna þeim í verki, ekki bara í orðum, hvernig beri að haga sér gagnvart yfirvaldinu og sýna öðrum virðingu. Ef við sýnum fólkinu í kringum okkur ekki virðingu hvernig getum við þá ætlast til þess að börnin okkar geri það? Að sjálfsögðu þurfa kennarar að geta haldið uppi aga í sínum kennslustofum en við foreldrar erum þau sem börnin treysta og trúa á og allt sem við gerum er satt og rétt. Nýtum þetta vald sem við höfum yfir börnunum okkar til góðs.
Hvernig vilt þú láta koma fram við þig?
RAH


