Svipting
Sama gildir um ýmsar starfsstéttir, tökum lækna sem dæmi, ef að þeir brjóta af sér í starfi þá missa þeir lækningaleyfin. Allt er þetta gott og gilt, vegna þess að samfélag okkar býður ekki upp á það að ekki séu lög og reglur sem þarf að fara eftir. Ef ekki væru lög og reglur, þá held ég að samfélagið myndi ekki virka.
Svo fer maður að hugsa þetta út frá atburðum síðasta árs, það er að segja frá því að „hrunið“ svokallaða varð. Ég viðurkenni það að ég veit nú kannski ekki alveg allt í sambandi við þetta blessaða hrun, en nógu mikið til að geta myndað mér skoðun á því. Svo virðist sem að nokkrir aðilar hafi komist yfir mikið magn af peningum með því að stofna félög, annað félag inni í félaginu og annað félag og annað félag og svo framvegis. Ef að eitt félagið fer á hausinn, þá stofna þeir bara nýtt félag og láta bara ömmu sína vera skráða fyrir því eða eitthvað álíka. Þetta eru kerfisfræðingar, það er að segja, þeir vita nákvæmlega hvað þeir geta gert og hvernig þeir komast upp með það. Þessum örfáu mönnum tókst að koma okkur svoleiðis á hvínandi kúpuna, að maður er farinn að halda miðað við fréttaflutning að engin leið sé upp úr eymdinni.
Þegar maður hugsar um ökumanninn, sjómanninn, flugmanninn og lækninn, þá skilur maður ekki hvers vegna ekki er hægt að gera neitt við fjárglæframennina sem komu heilli þjóð á hausinn. Maður veltir því fyrir sér af hverju má ekki svipta fjárglæframanninn réttinum til að stofna eða stjórna fyrirtækjum. Þeir virðast geta stofnað nýtt fyrirtæki eða félag, aftur og aftur og nota þá bara nýjar kennitölur, en alltaf eru þetta sömu mennirnir sem standa að baki þeim.Þar af leiðandi höfum við sömu stjórnendur í sömu fyrirtækjum og ef að til stendur að skipta um stjórnendur, þá geturðu verið viss um það að einhvers staðar neðan máls í ráðningarsamningnum hans standi, að alls ekki megi reka hann, vegna þess að hann eigi að stjórna fyrirtækinu til eilífðar, sama hvað gerist.
Mér finnst allavega sorglegt að það virðist ekkert vera hægt að gera í þessum málum, eða það gerist að minnsta kosti mjög hægt. Þetta hefur nefnilega áhrif á alla í landinu og líka börnin, sem maður kannski áttar sig ekki á. Eftirfarandi er samtal sem ég heyrði á milli tveggja 7 ára barna í fjölskylduveislu og finnst mér þetta vera lýsandi fyrir ástand samfélags okkar í dag.
S: Ætlar þú að byggja þér hús?
A: Ertu brjálaður, þá skulda ég svo mikið!
S: Ha?
A: Já ef við gerum það, þá kostar það 100 milljónir og börnin okkar og barnabörnin og barnabarnabörnin og barnabarnabarnabörnin og barnabarnabarnabarnabörnin þurfa þá að borga það.


