Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Stundum og stundum ekki

Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Ívar Örn Björnsson í hlutverkum sínum
Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Ívar Örn Björnsson í hlutverkum sínum

Blaðamanni Landpóstsins áskotnuðust um helgina tveir miðar á leiksýninguna Stundum og stundum ekki, sem sýnd er að Melum í Hörgárdal. Blaðamaður dró borgarbarnið unnusta sinn í sveitaleikhús á laugardagskvöldið. Bylur var úti og hálftíma keyrsla í leikhúsið svo unnustinn var ekki par ánægður með planið, en lét sig þó hafa það og uppskar hina mestu skemmtun.

Leikfélag Hörgdæla hefur sem áður segir farsann Stundum og stundum ekki eftir þá félaga Franz Arnold og Ernst Bach til sýningar um þessar mundir.  Leikarar eru um 15 talsins en fjöldi fólks kemur að sýningunni.  Það er Saga Jónsdóttir sem leikstýrir verkinu en þetta er í fjórða skipti sem hún leikstýrir hjá Leikfélagi Hörgdæla.

Verkið fjallar í stuttu máli um stjórnarráðsritara sem er orðinn þreyttur á því að vera sniðgenginn þegar stöðuhækkanir eru veittar og ákveður hann því að taka til sinna ráða.  Fjöldi fólks blandast svo í málið, samstarfsfólk hans, hinir ýmsu embættismenn og missaklausir hótelgestir og verður úr því mikil ringulreið.

Verkið er mikil ádeila á þá ritskoðun og leynd sem oft virðist vaka yfir stjórnmálaheiminum.  Sagan kann ekki að hljóma mjög spennandi í fyrstu en hún virkar vel í svona farsa.  Leikritið varð spennandi strax í byrjun og aldrei var langt í hláturinn.

Leikararnir voru yfirleitt öruggir í sínu skinni, sem er ekki alltaf auðvelt þegar komið er fram eins fáklæddur og gert var í sýningunni.  Sérstaklega trúverðuglegur og öruggur var þó aðalleikarinn Bernharð Arnarson í hlutverki Hálfdánar Hörgdal stjórnarráðsritara.  Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir fer einkar vel með hlutverk lauslátu konunnar Túttí og sést langar leiðir að þar er vön leikkona á ferð.  Þá gerir Tryggvi Gunnarsson pervertinn Sætran sérstaklega skemmtilegan og Sigurður Sverrisson er eftirminnilegur í hlutverki hins síkvartandi Grómundar.

Ljósin voru lifandi og sviðsmyndin skemmtileg.  Annað má þó segja um tónlistina sem var öll spiluð af bandi, en það gerði þann hluta sýningarinnar örlítið gervilegan.  Því hefði mátt kippa í liðinn með því að láta leikarana syngja í míkrófóna samfara bandinu, en slíkur kostur er ekki alltaf til staðar í litlum leikhúsum sem þessum og er leikfélagið afsakað fyrir það.  Músíkin var þó skemmtileg og vel hægt að dilla sér við hana.  Tónlistaratriðin voru flott og skemmtileg en hefði mátt gera ögn líflegri með örlítið ýktari hreyfingum og breiðara brosi.

Sýning Leikfélags Hörgdæla er engu síðri en sýningar atvinnuleikhúsanna hvað skemmtun og upplifun varðar. Blaðamaður kom skælbrosandi út af sýningunni og mælir með leikritinu við hvern þann sem hefur gaman af því að kíkja í leikhús.. og alveg er víst að unnustinn geri það sama.

Upplýsingar um miðapantanir og næstu sýningar má nálgast hér



Mynd augnabliksins

img_0515.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning