Stóriðja án rafmagns

Þriðjudagurinn 10. janúar er kvöld sem starfsmenn Norðuráls, álversins á Grundartanga eiga seint eftir að gleyma. Rafmagnslaust var í álverinu vegna veðurs og lá starfsemi niðri um tíma meðan reynt var að gera við vandamálin í mjög erfiðum aðstæðum.
Það var um kl 19:00 þriðjudaginn 10. janúar þegar eldur kom upp í spennistöð á Brennimeli í Hvalfjarðarsveit þegar allt rafmagn fór af Grundartangasvæðinu og þar á meðal álvers Norðuráls. Talið er að bilun hafi orðið á kerfinu vegna þess hversu veðrið var vont á svæðinu en mikill ís hafði sest á búnað í spennistöðinni sem og selta sem var í loftinu.
Þetta varð til þess að starfsemi álversins lá niðri á meðan á viðgerðum stóð í spennustöðinni. Þarna var mönnum ljóst að þeir væru í keppni við tímann en ekki má vera rafmagnslaust í álverinu meira en í 3 til 4 tíma en þá fer framleiðslan að storkna í pottum og öðrum tækjum sem notuð eru við framleiðsluferlið. Það hefði þá valdið hrikalegu tjóni og haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fyrirtækið og starfsemi þess.
Að sögn starfsmanna var rafmagnið af í 3 tíma og 40 mínútur og þykir það nær kraftaverk ekki fór allt á versta veg, þar sem aðeins um örfára mínútum seinna hefði það einmitt verið raunin.
Þegar spurt var starfsmenn hvernig þetta hefði atvikast og hvað hefði verið gert þegar ljóst var að verksmiðjan væri rafmagnslaus, fengust þau svör að ekkert hefði verið hægt að gera fyrr en rafmagnið yrði komið aftur öryggi starfsmannana vegna. Þegar rafmagnið kom svo aftur á, hófst gríðarleg vinna inní álverinu sjálfu til að vinna upp þann tíma sem tapaðist hefði svo allt færi nú ekki á annan endan á svæðinu. Enn er verið að vinna úr þessu og heldur sú mikla vinna áfram næstu daganna hjá öllum deildum fyrirtækisins. Það er því ljóst að það var dugnaður starfsmanna Norðuráls sem vann bug á þessu vandamáli og að ekki fór verr.


