Starfsfólk á flótta vegna niðurskurðar

Bæði hefur verið bætt auknum verkefnum á fólk á sama tíma og yfirvinna hefur verið bönnuð. Starfsmaður hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands sem Landpósturinn ræddi við sagðist því miður verða að segja upp starfi sínu því að hann hefði ekki efni á að vinna þar. Hann sagði að nokkrir samstarfsmenn sínir hefðu einnig þurft að hætta og enn aðrir væru í sömu hugleiðingum og væru að leita sér að vinnu annarsstaðar. Nýir starfsmenn sem þarf að ráða í staðinn verða því á enn verri kjörum en þeir sem hætta eftir áralangt starf.


