Stærsta vetrarsportsýning landsins nálgast

Éljagangur er vetrar- og útivistarhátíð á Akureyri sem haldin er í febrúar ár hvert. Hátíðin er haldin að þessu sinni dagana 9. til 12. febrúar.
„Það eru 74 dagskrárliðir og eru viðburðirnir 14 talsins sem eru opnir öllum, eins og Snjókarlinn, setningin, Vasaljósagangan, Ísskúlptúr við Hof, Camp Lobster snjóbrettakeppni og sýning, Snjósleðaspyrna, Flugeldasýning, Vetrarsportsýningin, Íslandsmeistaramót á vélhjólum og Íslandsganga.” Segir María Helena Tryggvadóttur hjá Akureyrarstofu, en hún er ein af 7 einstaklingum sem sitja í vinnuhóp fyrir hátíðina.
Fastir liðir á hátíðinni eru Vetrarsprtsýning EY-LÍV sem haldin er í Boganum, sleðaspyrna og ískross auk annarra viðburða. Það fer mikill tími í það að undirbúa svona hátíð og var búinn til vinnuhópur sem hefur unnið síðan í haust. „Vinnan sem fer í svona hátíð er gífurleg, en með því að skipta verkefnum niður á marga aðila verður þetta gerlegt. Vinnuhópurinn hefur hist reglulega síðan í haust og náð að vinna vel að undirbúningnum en samt fer megnið að vinnunni að mestu leiti fram síðustu vikurnar fyrir hátíðina og að sjálfsögðu á meðan hátíðinni stendur ” segir María. En í vinnuhópnum sitja 7 aðilar frá 5 stofnunum. En þær eru, Motul á Íslandi; EY-LÍV; tveir frá Blek, mörkun og miðlun; Hlíðarfjall/vetraríþróttamiðstöð Íslands og tveir frá Akureyrarstofu.
Ekki er selt inná hátíðina og því er ekki auðvelt að vita nákvæmlega hve margir taka þátt eða koma til Akureyrar en María segir að „í fyrra var met aðsókn á Vetrarsportsýninguna EY-LÍV, auk þess að aðsókn á marga viðburði var mjög góð, t.d. á sleðaspyrnuna, vasaljósagönguna og ískrossið. Við teljum því að fjöldi gesta sé umtalsverður og eigi bara eftir að vaxa. ”
Mikið líf er á staðnum meðan hátíðin stendur yfir og eru viðburðir dreifðir um allan bæ. En hversu stór er hátíðin orðin í raun og veru, er þetta að verða stærsta vetrarsýning sem haldin er á Íslandi? „Já, tvímælalaust. Sú fjölbreytni og magn viðburða sem eru í boði á Éljagangi höfðar til mjög breiðs hóps útivistarunnenda, auk þess sem við bjóðum upp á skemmtilegt úrval menningarviðburða á sama tíma.” Segir María.
Eins og fram kom kostar ekkert inn á hátíðina og ættu því allir að geta gert sér glaðan dag helgina 9. til 12. febrúar og fundið eitthvað sér við hæfi. Mikið af viðburðum eru skráðir og er hægt að finna alla dagskrá Éljagangs HÉR.
Þess fer þó að geta að búið er að flytja brettasýninguna, snjóspyrnuna, brettakeppnina og flugeldasýninguna upp í Hlíðarfjall föstudaginn, 10. febrúar, og byrjar dagskráin í fjallinu klukkan 18:00.


