Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Skriðjöklar á Græna hattinum

Skriðjöklar. (Mynd: promo.is)
Skriðjöklar. (Mynd: promo.is)

Annað kvöld mun hin akureyrska hljómsveit Skriðjöklar spila á Græna Hattinum. Nokkuð er síðan hljómsveitin kom síðast saman en hún var mjög virk á árunum 1985-90 og hafa margir eflaust heyrt lög á borð við Aukakílóin og Hesturinn.

“Ég hreinlega veit það ekki, ætli þá hafi ekki bara langað að fara að spila aftur” segir Eggert Benjamínsson, trommari Skriðjöklanna, þegar hann er spurður um ástæðu þess að þeir ætli að koma aftur saman um helgina. Hann býst við ágætis mætingu annað kvöld, en miðasala hefur verið í gangi í nokkurn tíma. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og að venju má búast við skemmtilegu kvöldi á Hattinum.


- HH



Mynd augnabliksins

p9301047.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 7
Samtals: 171886

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning