Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Skorið niður á Listasafninu á Akureyri

Hannes Sigurðsson - á förum í árslok 2011.
Hannes Sigurðsson - á förum í árslok 2011.

Ýmsir spyrja sig nú þeirrar spurningar hvaða stefnu Listasafnið á Akureyri muni taka í framtíðinni. Ástæðan er að samkvæmt samkomulagi lýkur samstarfi Hannesar Sigurðssonar og Akureyrarbæjar í lok næsta árs en áður mun koma til skerðingar á fjárveitingum miðað við fyrri ár. Hannes hefur um nokkurra ára skeið rekið safnið þannig að athygli hefur vakið út fyrir íslenska landsteina. Þannig hafa sumar sýningar safnsins verið flokkaðar sem alþjóðleg þrekvirki, Rembrandt sýningin er eitt dæmið.

 

Stefna Hannesar hefur verið umdeild. Ýmsir hafa lofað stórvirki hans en hluti bæjarbúa og norðlenskra listamanna hefur talið það meginhlutverk akureyrsks safns að kynna verk akureyrskra listamanna og hefur sá hópur lýst óánægju með að komast ekki að. Spyrja má hvort boðaðar breytingar og starfslok Hannesar verði til þess að norðlenskir myndlistamenn fái aukin tækifæri innan veggja safnsins. Ef svo má þá einnig spyrja hvort gósentíð safnsins í alþjóðlegu tilliti sé liðin. Tíminn mun leiða það í ljós en hitt virðist hafið yfir vafa að svipur safnsins muni með nýjum herrum taka breytingum.

Fyrir liggur að sumar sýningar safnsins á undanförnum árum sem haldið hafa nafni Akureyrar á lofti út um víðan völl hafa verið dýrar. Akureyrarbær hyggst spara peninga og menn verða einfaldlega að una við það, að sögn Hannesar. En hvort niðurskurðurinn verður til þess að sátt náist um framtíðaráherslur safnsins er önnur spurning og verður svarað síðar.



Mynd augnabliksins

p9301045.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 174394

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning