Skoppa og Skrítla í LA
Skoppa og Skrítla brugðu sér norður fyrir heiðar nú um páskanna og hafa verið að sýna fyrir fullu húsi um hátíðarnar. Þeim hefur verið mjög vel tekið og hefur yngsta kynslóðin skemmt sér vel í leikhúsinu.
Skoppa og Skrítla eru orðnar flestum íslendingum að góðu kunnar en það eru þær Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir sem leika þær vinkonur. Að þessu sinni fengu þær þrjá norðlenska krakka með sér á svið til að dansa og syngja í sýningunum en það eru þau Ólafur Ingi Sigurðsson sem leikur Matta, Móheiður Guðmundsdóttir sem leikur Monsu og Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir sem fer með hlutverk Mýslu.
Sýningin heitir Skoppa og Skrítla í Söng-leik, í þessari sýningu fara þær um allan heim og hitta margt merkilegt fólk eins og Hróa Hött, Shakespeare, Frelsisstyttuna í New York og fleiri kunnar persónur.
Þarna er á ferðinni metnaðarfull leiksýning fyrir yngstu kynslóðina þar sem börnum er kennt að fara í leikhús. Vel tekst að halda athygli áhorfendanna og er talaða málið reglulega brotið upp með söng og dans svo sýningin er létt og skemmtileg en jafnframt fræðandi.
Þær Linda og Hrefna standa sig frábærlega að vanda og eiga krakkarnir í sýningunni líka mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína.
Höfundur er Hrefna Hallgrímsdóttir, leikstjóri Þórhallur Sigurðsson, tónlist sér Hallur Ingólfsson um og búninga gerir Katrín Þorvaldsóttir.


