Skólaferðalag á Reyki í Hrútafirði
Nýverið fór 7. bekkur Lundarskóla í skólaferðalag að Reykjum í Hrútafirði. Blaðamaður landspóstsins tók, við heimkomu krakkanna, viðtal við Sigurð Orra Sigurðarson einn af nemundunum sem fór í þessa ferð. Blaðamaður spurði stráksa út í ferðina og hvernig hann upplifði hana.
Hvernig var á Reykjum? "Mér fannst fínt. Skemmtilegast á kvöldvökunum útaf því að það voru t.d. fyndin leikrit og síðan var líka geðveikt gaman í fjöruferð en þar var verið að leita að kröbbum og svoleiðis og síðan fundum við kassa í fjörunni með byssum og skotfærum og kennarinn sagði að þetta gætu verið leifar frá seinni heimsstyrjöldinni."
"Hvað fanns þér leiðinlegast?" "Þegar við þurftum að læra og líka þegar ég fékk heimþrá sem var reyndar alla ferðina"
"Værirðu til í að fara svona ferð aftur? " "Já ég væri sko alveg til í að fara svona ferð aftur, ef við þyrftum ekki að læra"
Blaðamaður þakkar Sigurði Orra kærlega fyrir viðtalið og óskar honum góðs gengis.


