Skíðasvæðin opin

Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli, Bláfjöllum og Skálafelli verða opin í dag.
Í Hlíðarfjalli verður opið milli 9 og 16 í dag, þar er hægur vindur og tveggja gráðu frost. Í nótt snjóaði og er búið að troða átta brautir.
Í Bláfjöllum er nú um tveggja gráðu frost, 3m/sek og heiðskýrt. Skíðasvæðið er opið frá klukkan 10-17.
Hin árlega páskamessa verður haldin klukkan 13, við Bláfjallaskála þar sem sr. Pálmi Matthíasson messar. Og að auki verður frí skíðakennsla milli klukkan 11 og 15. Í hádeginu hefst svo Bláfjallaganga á göngusvæðinu.
Í Skálafelli er bjart og fallegt veður og þar er opið milli klukkan 10 og 17 í dag og búið að troða leiðir við allar lyftur. Á svæðinu er um 8-10m/s og hitastig rétt undir frostmarki.
Um að gera að nýta þennan fallega annan dag páska til að renna sér í brekkunum.


