Skálmöld og Skurk á Akureyri 7.apríl

Laugardaginn 7. apríl verður efnt til þungarokkstónleika á Akureyri, nánar tiltekið á Sportvitanum.
Þá leiða saman hesta sína tvær stórsveitir í íslenskum þungarokksheimi, Skálmöld og Skurk. Sérstakir gestir tónleikanna er hljómsveitin Dánarbeð hefur hingað til verið þekkt fyrir að framleiða og framreiða öfgakennt og framsækið þungarokk.
Húsið opnar stundvíslega klukkan 21.00 og hefjast tónleikarnir fljótlega eftir það. Miðaverð er 2.500 krónur og er forsalan hafin í Imperial á Glerártorgi.


