Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Sigurför Smáfugla heldur áfram

Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, hefur verið sýnd á ótal kvikmyndahátíðum um heim allan síðan hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí á síðasta ári. Hefur myndin hlotið með eindæmum góðar viðtökur og sópað til sín verðlaunum. Um síðustu helgi bættust 4 verðlaun í hópinn og eru þau þá orðin 35 talsins. Myndin var sú stuttmynd sem fékk flest alþjóðleg verðlaun í heiminum á síðasta ári og er það sama uppi á teningnum það sem af er þessu ári.

Smáfuglar er önnur myndin í krossgötu þríleik Rúnars en sú fyrsta, Síðasti Bærinn, hlaut einnig afbragðsgóðar viðtökur og var m.a. tilnefnd til Óskarsverðlauna. Tökur á síðustu mynd þríleiksins eiga að hefjast í lok árs og má ímynda sér að sú eigi eftir að fara mikinn á kvikmyndahátíðum næsta árs. Rúnar og framleiðslufyrirtækið Zik Zak, sem framleiddi Síðasta Bæinn og Smáfugla, eru einnig með mynd í fullri lengd í farvatninu og er stefnt á að hefja tökur á henni sumarið 2010.


Mynd augnabliksins

img_8689.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning