Seldu aleigu sína til að gera heimildarmynd um Ísland

Meðan hugur margra Íslendinga er erlendis um þessar mundir ákváðu tveir Bretar að koma til landsins og gera heimildarmynd um björtu hliðar mannlífsins á Íslandi.
Tveir breskir kvikmyndagerðamenn tóku þá ákvörðun að selja aleigu sína og flytja til Íslands til þess að búa til heimildarmynd um land og þjóð. Þessi mynd verður ekki um hrunið og svartsýnina sem hefur ríkt á Íslandi undanfarið. Þess í stað á myndin að fjalla um bjartsýni Íslendinga og grasrótina hér á landi sem vissulega er að finna hér á landi ennþá, þrátt fyrir allt sem hefur dunið á þjóðinni.
Myndin er nánast fullbúinn og hafa kvikmyndagerðamennirnir lagt mikið á sig við gerð hennar, meðal annars farið átta sinnum umhverfis landið. Þeim skortir peninga til að klára myndina en þeir ætla ekki að gefast upp og eru nú að safna peningum til að ljúka við gerð myndarinnar. Hægt er að skoða brot úr myndinni á síðunni kicstarter.com og þar er einnig upplýsingar fyrir þá sem eru áhugasamir í að styrkja kvikmyndagerðamennina.

