Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

SA tryggði sér sæti í úrslitum með stórsigri

Frá leik SA - SR sem fram fór fyrr í vetur. (mynd/sasport.is - Sigurgeir Haraldsson)
Frá leik SA - SR sem fram fór fyrr í vetur. (mynd/sasport.is - Sigurgeir Haraldsson)

SA tók á móti Birninum á Íslandsmeistaramótinu í íshokkí á Akureyri í kvöld. Leiknum lauk með stórsigri heimamanna 6-0. Akureyringar tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins með sigrinum og mæta þar annað hvort SR eða Birninum.

SA byrjuðu leikinn að krafti og náðu þriggja marka forystu strax í fyrsta leikhluta. Ekki var staða heimamanna verri eftir annan leikhluta en SA bætti þá við tveimur mörkum og staðan í hálfleik því 5-0. Í seinni hálfleik var leikurinn nokkuð jafn og náði hvorugt liðið að skora í þriðja leikhluta. Í síðasta leikhlutanum náðu heimamenn svo að klára leikin endanlega með einu marki og sigruðu leikinn 6-0.

Stefán Hrafnsson fór á kostum í liði SA og skoraði 4 mörk og Sigmundur Sveinsson og Hilmar Freyr Leifsson skoruðu sitt markið hvor. Næsti leikur SA er á laugardaginn í Reykjavík gegn SR. Í þeim leik geta heimamenn tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri.

vev.



Mynd augnabliksins

img_4699.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning