Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Reykjavík Whale Watching Massacre

Mynd: kvikmyndir.is
Mynd: kvikmyndir.is

Ég ákvað í gærkvöldi að skella mér í bíó og varð hinn nýi íslenski spennutryllir „Reykjavík whale watching massacre“ fyrir valinu. Ég hafði í raun ekki hugmynd um við hverju væri að búast, enda ekki á hverjum degi sem íslendingar búa til kvikmynd af þessu tagi.

Í stuttu máli fjallar myndin um hóp erlendra ferðamanna sem fara í hvalaskoðun frá Reykjavíkurhöfn eitthvert út á Faxaflóa. Þegar báturinn þeirra verður hinsvegar vélarvana óska þeir aðstoðar og eru sótt af engum öðrum en Helga Björnssyni sem fer með þau yfir í hvalveiðiskip þar sem hann virðist, af einhverjum ástæðum, búa ásamt móður sinni og bróður.  Fjölskyldan er lítið hrifin af náttúruunnendum og hefst gríðarlega blóðug atburðarás um borð í skipinu þar sem þau reyna að myrða ferðamennina.

Ég  á örlítið erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa áliti mínu á þessari kvikmynd. Stórfurðuleg er það orð sem kemur fyrst upp í hugann. Söguþráðurinn er frekar þunnur og tilgangslaus, og handritið virkar eins og lélegt heimaverkefni sem var skrifað 15 mínútum áður en að átti að skila því. Eins og vill gjarnan verða með íslenskar kvikmyndir, þá er þessi svolítið kjánaleg á köflum. Frammistaða leikarana er alls ekkert stórkostleg og eru samtölin stundum vandræðalega léleg og jafnvel hlægileg, en kannski er það bara furðulegur húmor handritshöfundar. A.m.k. fékk ég nánast kjánahroll í hvert skipti sem einhver gerði sig líklegan til þess að opna á sér kjaftinn.

En ég ætla þó ekki að segja að myndin hafi verið alslæm. Sem svona semi-tilgangslaus spennutryllir/hrollvekja stendur hún svosem fyrir sínu. Einnig var frekar gaman að sjá hversu vel gerð sum af blóðugri atriðunum voru, þar sem maður er nú ekki vanur að sjá slíkt í íslenskri kvikmyndagerð. Því miður hef ég ekki mikið meira jákvætt að segja.


Ég veit í raun ekki hvort ég geti mælt með eða á móti því að fólk fari og sjái þessa kvikmynd. Fyrir áhugafólk um íslenskar kvikmyndir þá er þetta klárlega eitthvað nýtt. Einnig ef þú hefur bara gaman af því að sjá fólki slátrað á hressan og skemmtilegan hátt þá ættirðu að geta skemmt þér yfir henni. En ef þú ætlar að fara bera hana saman við einhver meistarastykki þá ættirðu kannski bara að gera eitthvað sniðugra við tíma þinn og fjármuni.



Mynd augnabliksins

p9301048.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning