Reykjanesbær sigrar Akureyringa í Útsvari
Reykjanesbær hafði betur í viðureigninni í Útsvari nú fyrr í kvöld 88-73. Hnífjafnt var á öllum tölum en undir lokin hafði Akureyrabær kost á að svara 15 stiga spurningu og jafna þar með metin en það gekk ekki eftir.
Þau Hilda Jana Gísladóttir, Erlingur Sigurðarson og Pálmi Óskarsson sem skipa lið Akureyrar stóðu sig hins vegar mjög vel og mega vera sátt með eigin frammistöðu. Landpósturinn óskar einnig Reykjanesbæ til hamingju með sigurinn.


