Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Rangar upplýsingar á RÚV

Fyrrum plánetan Plútó. Fréttinar um stöðulækkun hennar niður í dvergplánetu hefur greinilega ekki náð eyrum allra
Fyrrum plánetan Plútó. Fréttinar um stöðulækkun hennar niður í dvergplánetu hefur greinilega ekki náð eyrum allra

Á mánudaginn var sat blaðamaður fyrir framan sjónvarpið og var að horfa á RÚV. Var verið að sýna fræðsluþátt um sólkerfið þar sem þátturinn í þetta sinn var um Plútó og ekki bara um Plútó. Heldur um reikistjörnuna Plútó!

Blaðamaður varð mjög undrandi þegar farið var að tala æ ofan í æ um reikistjörnuna Plútó, að hún væri ysta reikistjarnan í sólkerfinu o.s.frv. Því eins og sumir vita þá var Plútó svipt titlinum reikistjarna fyrir fjórum árum síðan á alþjóðlegri ráðstefnu stjörnufræðinga þegar að hugtakið reikistjarna var endurskilgreint. Hlaut Plútó stöðulækkun og varð að dvergplánetu og telst þar með ekki ein af reikistjörnum sólkerfisins. En þær fréttir höfðu greinilega ekki náð eyrum starfsmanna RÚV sem sýndu þennan úrelta þátt seinastliðinn mánudag.

Finnst blaðamanni þetta afskaplega lélegt af RÚV þar sem það er í lögum um Ríkisútvarpið ohf. að það eigi að veita almenna fræðslu. Einnig er það í lögum að efnið skuli fullnægja eðlilegum kröfum almennings um gæði og fjölbreytni. Það að sýna úrelt fræðsluefni í sjónvarpinu fullnægjir allavega ekki kröfum blaðamanns um gæði og getur hún vel ímyndað sér að fleiri séu sama sinnis.

Einmitt vegna þess að það er í lögum að sjónvarpið eigi að tryggja gæði efnis síns og hlutverk þess er að fræða almenning, ætti þá ekki að gæta þess að ekki sé verið að fræða almenning á úreltu efni? Ættu starfsmenn ríkisútvarpsins ekki að sjá til þess að fræðsluefnið sem sem verið er að sýna innihaldi réttar upplýsingar?

Ég bara spyr.

KBS



Mynd augnabliksins

img_4653.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning