Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Óvíst er með þátttöku Íran á Ólympíuleikunum

Svo virðist sem þátttaka Íran á Ólympíuleikunum í sumar sé óviss eftir að stjórvöld þar í landi lokuðu á aðgang að opinberri heimasíðu leikanna. Ósætti er í Íran á tákni Ólympíuleikanna.

Íbúar í Íran hafa í gegnum Twitter látið vita að þeir komist ekki á vefsíðuna london2012.com en lenda hins vegar í staðinn á innlenda fréttasíðu. Talið er ólíklegt að Íranar geti yfirhöfuð fylgst með Ólympíuleikunum í sumar.

Talið er fyrir víst að írönsk stjórnvöld sjái fyrir lokuninni en skýringin er talin vera að úr tákni Ólympíuleikanna megi lesa orðið „Zion“ sem þýðir Jerúsalem eða Ísrael á Hebresku. Íran hefur áður hótað að draga sig úr vegna þessa. Þeir drógu hins vegar þessar hótanir til baka en lokun vefsíðunnar má túlka að þátttaka Íran sé í hættu.




Mynd augnabliksins

p9301048.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning