Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Óhefðbundnar lækningar.

Elin Von hómópati á stofu sinni
Elin Von hómópati á stofu sinni
Áhugi fólks á smáskammatlækningum hefur aukist mikið undanfarin ár bæði hér á landi og erlendis. Elín Von hefur starfað sem hómópati á Akureyri sl. átta ár. Hún segir fræðin byggja á lögmálinu líkt læknar líkt.

Þó að fordómar séu miklir í garð hómópatíu þá segir Elín hana standa á traustum grunni .Bæði í Þýskalandi og á Englandi eru starfrækt sjúkrahús þar sem læknar stunda hómópatíu, sérstaklega á þetta við barnalækningar. Enda má rekja upphafið hómópatíu 180 ár aftur í tímann til þýska lækninsins dr. Samúle Hanemann. Lyfin sem notuð eru til að meðhöndla meinin kallast remedíur og eru í pilluformi.

Elín segir að til þess að finna réttu remedíuna þarf ég að fá ýmsar upplýsingar um þann sem til mín leitar. Fyrsta viðtalið getur tekið allt að tvo tíma þar sem ég spyr um  heilsufar einstaklingsins  og fjölskyldu hans fyrr og síðar. Allt skiptir máli sama hversu lítilvægt það kann að hljóma. Það er mikilvægt að upplýsingarnar séu sem nákvæmastar. Efitr nokkurn tíma ættu breytingar að koma fram í líðan einstaklingsins. Best er ef hann lætur mig vita um líðan sína, meðan á meðferð stendur þannig get ég metið árangurinn af meðferðinni.
Þeir sem leita eftir þjónustu hómópata eru þeir sem trúa á náttúrulækningar almennt og svo fjölgar þeim alltaf sem hafa reynt að fá bót meina sinna með ýmsum leiðum án árangurs segir Elín að lokum.

 



Mynd augnabliksins

p9301048.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning