Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Ögmundur: fréttamenn RÚV ekki heiðarlegir

Mynd Pressan/Gunnar
Mynd Pressan/Gunnar

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir sögulegt skilningsleysi fréttamanna RÚV mjög ámælisvert og spyr hvort til of mikils sé ætlast þegar verið sé að hafa æruna af honum að fréttamenn hafi lágmarksþekkingu á viðfangsefninu og séu heiðarlegir. 

Tilefni þessara orða Ögmundar er frétt RÚV í gærkvöldi um lífseyrismál.

Fréttastofa Sjónvarps taldi sig geta sýnt fram á það í kvöld að sú staðhæfing mín væri röng að ég hefði ekki stutt ákvæði lífeyrislaga sem kváðu á um að lífeyrissjóðir ættu jafnan að leita eftir hámarksávöxtun í fjárfestingum sínum.

Hann bendir á að þrjú frumvörp hefðu komið fram á þingi 1996. Breyting á lögum um verkföll og vinnudeilur, breytingar á lögum um réttindi opinberra starfsmanna og frumvarp um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Tvö fyrstnefndu hafi náð fram að ganga með breytingum.

Í kjölfarið sátum við, BSRB, BHM og Kennarasamband Íslands, sumarlangt og sömdum um nýjan lagagrundvöll fyrir lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna við ríkisvaldið og í kjölfarið einnig við sveitarfélögin. Til varð nýtt kerfi. Ég tel að með því að koma í veg fyrir samþykkt upphaflega lífeyrisfrumvarpsins - sem hefði rústað lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna - verja gamla kerfið þannig að öll áunnin réttindi héldust og semja um nýtt kerfi fyrir framtíðina sem byggði á stigakerfi , sömu grunnhugsun og sjóðir á almennum markaði, unnu opinberir starfsmenn einn sinn stærsta sigur enda kostaði átakið gríðarlega vinnu og mikla baráttu sem þúsundir tóku þátt í.

Hann bætir við:

Þegar lífeyrisfrumvarpið, sem byggði á samningi okkar frá sumrinu og haustinu 1996, kom til atkvæðagreiðslu í árslok 1996 hafði verið skotið inn ákvæði um fjárfestingarstefnu sem m.a. gekk út á að lífeyrissjóðum bæri að sækjast eftir hámarksávöxtun en ekki félagslega ábyrgum fjárfestingum einsog við vildum sum. Á Alþingi var ég einn um að styðja ekki þessa lagaklásúlu þegar hún kom endanlega til atkvæðagreiðslu.

Hann hafi svo samþykkt heildstætt „þann breiða grunn sem hið nýja kerfi átti að byggja á og við höfðum samið um. Einhverjir voru andvígir því að að opinberir starfsmenn skyldu áfram búa við lífeyriskerfi með réttindum umfram það sem gerðist á almennum markaði. Sjálfur vildi ég gjarnan jafna réttindin en þá skyldu þau líka jöfnuð upp á við en ekki niður á við!“

En nú aftur að frétt Sjónvarpsins. Kannski á ekki að álasa fólki fyrir að kunna ekki skil á þessum sögulegu staðreyndum. Samt finnst mér sögulaust skilningsleysi fréttastofunnar vera mjög ámælisvert,  einsog það birtist okkur í kvöld. Vera kann að stundum komi slíkt skilningsleysi ekki að sök en þegar verið er að hafa æruna af mönnum er varla til of mikils mælst að biðja fréttamiðla að setja menn í verkin sem hafa lágmarksþekkingu á viðfangsefni sínu, hafa faglegan metnað, og standa heiðarlega að verki.

Ingibjörg Snorra 


Mynd augnabliksins

img_0436.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning