Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Ofurskál auglýsinganna

Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans Saints, með Ofurskálina.
Drew Brees, leikstjórnandi New Orleans Saints, með Ofurskálina.
Á sunnudaginn fór fram einn stærsti viðburðurinn á hverju ári í Bandaríkjunum, það sem heimamenn kalla SuperBowl Sunday. Þetta er skemmtilegur viðburður sem sýndur er út um allan heim og margar milljónir sem horfa á hverju ári. Um er að ræða úrslitaleikinn í NFL deildinni í því sem kanarnir kalla fótbolta.

Í ár mættust liðin Indianapolis Colts og New Orleans Saints og það kom mörgum á óvart að New Orleans Saints sigruðu leikinn, 31-17. En það er auðvitað svo miklu meira en leikurinn sem heillar áhorfendur. Það sem stendur upp úr í sýningum í kringum leikinn er klárlega hálfleikssýningin. Margir muna eflaust eftir því þegar Justin Timberlake beraði vinstra brjóstið á Janet Jackson fyrir nokkrum árum í hálfleikssýningunni. Þetta árið stigu gömlu hetjurnar í The Who á stokk og spiluðu allan sína bestu slagara við mikla hrifningu viðstaddra.

Annað sem er orðinn árlegur viðburður í útsendingum frá Ofurskálinni eru auglýsingarnar. Stór fyrirtæki keppast um að frumsýna nýjustu auglýsingarnar sínar á meðan á leik stendur. Undirritaður hefur nokkrum sinnum horft á þennan viðburð, en í fyrsta skipti í ár horfði ég á útsendingu frá Bandaríkjunum. Það er óhætt að segja að ég hef aldrei áður séð jafn mörg og löng auglýsingahlé. Það kom nokkrum sinnum fyrir að aðeins ein sókn, sem tók ekki meira en tvær mínútur, væri spiluð á milli auglýsingahléa og ekki nóg með það heldur voru þulirnir einnig að lesa inn auglýsingar þess á milli. Til dæmis þá hætti ég að telja styrktaraðila útsendingarinnar þegar ég var kominn uppí tíu og þeir voru klárlega fleiri en það. Vissulega voru nokkrar auglýsingar þarna skemmtilegar en þetta var full mikið. Mér varð hugsað til þess hvernig Íslendingar hefðu brugðist við ef auglýsingahlé hefðu verið á nokkra mínútna fresti á EM í handbolta og ef Adolf Ingi hefði verið að skjóta inn skilaboðum frá styrktaraðilum þess á milli.

Þrátt fyrir þetta nöldur í mér var þessi viðburður gríðarlega skemmtilegur og leikurinn sjálfur alls ekki svo slæmur þegar maður lærir á hann.

vev.



Mynd augnabliksins

img_0432.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning