Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Ófrískum konum í yfirþyngd gefin sykursýkislyf.

Sótt af: http://news.sky.com/home/uk-news/article/16201065
Sótt af: http://news.sky.com/home/uk-news/article/16201065
Í nýrri breskri rannsókn eru nú gerðar tilraunir þar sem  konum í yfirþyngd eru gefin sykursýkislyf til að koma í veg fyrir að börn þeirra fæðist of þung.

Tilkoma þessarar rannsóknar eru þær fréttir að mörg börn fæðist of þung og eru þau stundum nefnd „sumo börn“ með tilvísunni í hina umfangsmiklu japönsku glímumenn. Börn sem fæðast of þung eru sögð tvisvar sinnum líklegri til að eiga í vanda vegna offitu á fullorðinsárum.

Að sögn Fiona Denison læknis við Edinborgarháskóla segir lyfið sem heitir Metformin verkar  þannig að það minnkar glúkósa í blóði móðurinnar og eru vonir bundnar við að það geti aukið heilbrigði bæði móður og barns á meðgöngu, lyfið er talið hættulaust og er nú þegar gefið ófrískum með sykursýki. Í breskum rannsóknum kemur fram  að um 15% verðandi mæðra séu of feitar og eru því líklegri til að þróa með sér sykursýki á meðgöngu og eru þá meiri líkur á að börn þeirra fæðist andvana. Rúmlega 12 þúsund börn, 20 merkur eða þyngri fæddust í Bretlandi á síðasta ári og hefur fjölgað mjög á allra síðustu árum. Níu sjúkrastofnanir í Bretlandi taka þátt í rannsókninni, en niðurstaðna er ekki að vænta fyrr en eftir að minnsta kosti tvö ár.



Mynd augnabliksins

20110212-img_7613-4.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning