Nýr prentmiðill á markað
Róstur, er nýr og
óháður prentmiðill á íslenskum fjölmiðlamarkaði, sem leit dagsins ljós í gær. Það er Áhugamannafélag um breytta tíma, sem sér um útgáfu þess. Blaðinu verður dreift um land allt og mun fyrsta
tölublaðið verða sýnilegt á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Í ritstjórn fyrsta tölublaðs sitja þau Anna
Þórsdóttir, Helga Katrín Tryggvadóttir og Jón Bjarki Magnússon. Sérstaða Rósturs, umfram aðra prentmiðla, felst í
rekstrarfyrirkomulagi blaðsins, en blaðið verður ekki rekið með auglýsingatekjum eða hlutafé, heldur með frjálsum framlögum lesenda.
Forsvarsmenn Rósturs, ungir háskólanemar við Háskóla Íslands, trúa því að almenningur muni taka vel í það að styrkja útgáfuna og þar með taka virkan þátt í að viðhalda opinni og upplýstri fjölmiðlaumræðu hér á landi, án þess að eiga það á hættu að greiðslur frá hagsmunaaðilum hafi áhrif á þá fréttamiðlun sem þeim standi til boða.
Hugmyndin að baki stofnun prentmiðilsins spratt, að sögn ritstjórnar, í kjölfar "einstaklega lélegrar fréttamennsku sem tröllríður íslenskum fjölmiðlum, einhæfrar umfjöllunar þar sem hver apar eftir öðrum, ekkert er kafað í málin og gagnrýni er ábótavant. Við, sem að þessu blaði stöndum, leggjum áherslu á að skoða málin frá öðrum hliðum."
Um verður að ræða mánaðarlega útgáfu til að byrja með og því verður ekki um nýjustu fréttir að ræða, en í staðinn stendur til að kafa dýpra ofan í málefni líðandi stundar. Ein aðaláherslan verður lögð á erlendar fréttir og þá gjarnan á það að birta fréttir sem lítið er fjallað um og hafa um þær nánari umfjöllun en gert er annars staðar. Einnig verður lögð áhersla á að tengja atburði og samfélagsmál hér á landi við sambærilega þætti erlendis og þannig leitast við að varpa ljósi á samhengi atburða. Í blaðinu verður einnig rými fyrir greinar, samfélagsrýni, viðtöl og aðsent efni.
Róstur heldur einnig úti heimasíðunni, www.rostur.org, en þar er
að finna leiðara fyrsta tölublaðsins. Þar kemur fram að útgáfu Rósturs er ætlað að vera mótvægi við þá
fjölmiðla sem eru í eigu fjármagnseigenda og þjóna sem „dulin áróðurstæki eigenda sinna”, og þeir gagnrýndir fyrir
aðkrefjast fyrst og fremst gróða, umfram góðrar fréttamennsku. Þetta leiði til þess vandamáls að fyrir vikið þori
fjölmiðlarnir ekki að stunda gagnrýna fréttamennsku gagnvart stórfyrirtækjum og stórum auglýsendum, vegna þess hve stór
ítök hlutafjáreigenda eru í rekstrinum.
Því er yfirlýst stefna hins nýja, lýðræðislega prentmiðils, Rósturs, sú að taka hvorki við styrkjum frá stjórnmálahreyfingum né selja auglýsingapláss. Til að þetta gangi upp verði öll vinna við blaðið ólaunuð og kostnaði haldið í lágmarki. Lesendur geta tryggt áframhaldandi útgáfu blaðsins með frjálsum fjárframlögum, auk þess að greiða prentkostnað sem er 120 krónur á eintakið. Mælst er til þess að þeir sem vilja fá blaðið sent heim, greiði 190 króna póstburðargjald. Allur hagnaður af rekstri blaðsins, mun renna til samtaka sem vinna mannréttindamálum.
Einu skyldur Rósturs, eru þær sem snúa að hagsmunum lesenda og samfélagsins: „Ef við viljum raunverulegar breytingar hlýtur það
að fela í sér algjöra endurskoðun þeirrar hugmyndafræði sem við samþykkjum og viljum lifa eftir. Með áherslu á samvinnu og
afneitun gróðahugsjónar vonast Róstur til þess að verða liður í að stuðla að slíkum breytingum.”
Hér má heyra viðtal við
Helgu Katrínu Tryggvadóttir og Önnu Þórsdóttur, ritstjórnarmeðlimi Rósturs, í Víðsjá, þann 1. mars
2010.
- Mel


