Nýr pool staður opnar á Akureyri.

Fyrirhugað hefur verið að opna nýjan pool stað á Akureyri í febrúar í gamla Allanum þar sem veitingastaðurinn Pengs var áður staðsettur.
Rekstraraðili staðarins Hafþór Logi er 24 ára að aldri og er bjartsýnn varðandi staðinn. Hann sér fyrir sér að þar verði, fyrir utan að geta spilað pool, sýndir íþróttaviðburðir bæði fótbolti og bardagaleikir auk þess sem haldin verða pool mót. Tvö átta fet keppnis borð og eitt níu fet á stærð verða á staðnum. Einnig geta gestir staðarins búist við að það verði í boði að kaupa léttar veitingar.Framkvæmdirnar ganga vel og er nú verið að leggja lokahönd á staðinn. Farið er að sjá fyrir endanum á vinnu tengdu viðhaldi á staðnum en talsverða vinnu þurfti í eldhúsið og laga það svo að öll tilheyrandi leyfi sem fylgja svona stað verði veitt. Spenningur er fyrir opnuninni og finnst Hafþóri líklegt að Akureyringar muni taka vel í þessa nýju viðbót í afþreyingu í bæjarlífinu.
Eftirspurn um staðinn hefur verið þó nokkur nú þegar og meðal annars hefur Pílufélag Akureyrar sótt um að halda pílumót á pool stofunni og stærri hópar beðið um að halda starfsmannasamkomur þar.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með betur með er bent á að skoða facebook síðu pool stofunnar.


