Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Námsstyrkur frá Hugvit hf

Við afhendingu í dag
Við afhendingu í dag
Fyrirtækið Hugvit hf. veitti í dag styrk til nemanda í raunvísindanámi við Háskólann á Akureyri, að upphæð 500.000 kr. Styrkinn hlaut Ketill Gauti Árnason nemi í líftækni, Ketill Gauti þykir hafa sýnt framúrskarandi námsárangur á raungreinasviði í framhaldsskóla sem og á fyrsta ári við viðskipta-og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.
Afhendingin fór fram við Sólborg og veitti Stefán B. Sigurðsson, rektor háskólans styrkinn fyrir hönd Hugvits hf. að viðstöddum deildarforseta viðskipta- og raunvísindadeildar og öðrum stjórnendum skólans.  Styrkur sem þessi kemur sér afar vel fyrir ungan stúdenta eins og Ketil Gauta, hann segir styrkinn endurspegla vel að það borgi sig að leggja sig 100% fram í náminu. „Þetta er mikil hvatning fyrir mig til að halda áfram til að stunda námið að kappi“ segir Ketill Gauti þakklátur með styrkinn.

Landpósturinn vill óska Katli Gauta innilega til hamingju með styrkinn.  

heimild: www.unak.is


Mynd augnabliksins

img_0519.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 44
Samtals: 173888

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning