Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Möguleikar Íslendinga á EM

Á morgun ræðst það hvaða þjóðir komast í undanúrslit á Evrópumótinu í handbolta. Þá fara fram síðustu leikir í milliriðlum. Í millirðili 1 eru 4 lið sem enn eiga möguleika á sæti í undanúrslitum. Það eru, auk Íslendinga, Króatar, Danir og Norðmenn.

Þrír leikir fara fram í milliriðli 1 á morgun. Austurríkismenn og Rússar mætast, en sá leikur skiptir litlu máli þar sem hvorugt liðið á möguleika á sæti í undanúrslitunum. Rússar eru enn án stiga og Austurríkismenn hafa einungis 1 stig, sem þeir fengu þegar þeir gerðu jafntefli við Íslendinga.

 

Danir og Króatar mætast einnig á morgun. Sá leikur getur haft mikil áhrif á afdrif íslenska liðsins, takist strákunum ekki að vinna Norðmenn. Króatar eru sem stendur efstir í riðlinum með 7 stig. Danir eru í þriðja sæti með 6 stig, jafn mörg og Íslendingar. Norðmenn verma fjórða sætið með 4 stig.

 

Sá leikur sem mun þó án efa vekja áhuga flestra landsmanna, er leikur Íslands og Noregs. Í þeim leik róa Norðmenn lífróður, en til þess að eiga möguleika á að komast í undanúrslitin verða þeir að sigra Íslendinga. Ef Íslendingar tapa fyrir Noregi með meira en fjögurra marka mun, hverfa möguleikarnir á sæti í undanúrslitum. Tapi Íslendingar með minna en fjögurra marka mun verðum við að treysta á að Króatar sigri Dani, því ef svo fer þá kemst Ísland í undanúrslitin þrátt fyrir tap. Íslendingum dugir jafntefli í leiknum til að tryggja sig áfram í undanúrslitin.

 

Af þessum fjórum liðum, eiga Norðmenn tölfræðilega minnsta möguleika á því að krækja sér í sæti í undanúrslitunum. Til þess að það gerist verða þeir að vinna Íslendinga með a.m.k. 4 mörkum, ásamt því að treysta á að Króatar vinni Dani.

Í norskum fjölmiðlum má lesa mikla óánægju eftir leikinn við Dani í gær. Þar töpuðu þeir með eins marks mun, og ekki eru allir Norðmenn sáttir við dómara þess leiks. Bjartsýni norskra íþróttafréttamanna virðist af skornum skammti, við Íslendingar skulum vona að svartsýnir norskir íþróttafréttamenn reynist sannspáir.


- HH



Mynd augnabliksins

img_8694.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning