Manchester City ekki í góðri stöðu

Fótboltafélagið Manchester City hefur lýst því yfir að leikmaður félagsins, sóknarmaðurinn Carlos Teves muni fá að taka sér eins mikinn tíma og hann þarf frá fótboltanum en kappinn eignaðist dóttir nýverið sem fæddist fyrir tímann. Þjálfari liðsins, Robert Mancini lýsir þá yfir áhyggjum sínum ef Teves leikur ekki með liðinu næstkomandi laugardag á móti Chelsea.
Teves sem er 26 ára gamall hefur nú misst af þremur síðustu leikjum félagsins eftir að honum var veitt tímabundið leyfi svo hann geti verið hjá dóttur sinni Katie sem er nú á gjörgæsludeild fyrir börn sem fæðast fyrir tímann og eru því í hættu. Formenn félagsins hafa sett sig í samband við Teves en vita ekki hvenær hann snýr aftur. Framundan hjá liðinu í ensku bikarkeppninni er leikur á miðvikudaginn þar sem menn Manchester City leika á móti Stoke og á laugardaginn mæta þeir svo Chelsea mönnum en þess má geta að Chelsea er efsta liðið í deildinni. Robert Mancini þjálfari Manchester City segir Teves ekki hafa verið í neinum samskiptum við liðið og lýsir yfir áhyggjum sýnum vegna fjarveru hans en síðastliðin sunnudag féll liðið niður um eitt sæti eftir leikinn á móti Liverpool sem fór 0-0. Mancini segir jafnframt að hann viti ekkert um líkamlegt ástand Teves né hvar hann sé niður kominn og segir það vera stórt vandamál fyrir sig sem og að hann þarfnist hans. Hins vegar segir talsmaður Teves, Kia Joorabchian, að kappinn sé í stöðuðu sambandi við félagið, stundi stífar æfingar og að hann stefni á að koma til baka í leikinn á móti Chealse laugardaginn næskomandi sem verður á heimavelli Chelsea, Stamford Bridge. Joorabchian segir einnig að hlutirnir líti betur út núna fyrir dóttur kappans en henni versnaði fyrir leikinn við Liverpool sem varð til þess að Teves gat ekki spilað með liði sínu á móti þeim. Þá segir Joorabchian ennfremur að Teves eyði einni og hálfri klukkustund upp í tvær klukkustundir á dag við æfingar í Argentínu þar sem kappinn er staddur og segir að Teves sé sannur atvinnumaður og að hann geri sér fulla grein fyir því hvað hann þurfi að gera til þess að halda sér í formi.
Þá segir Mancini það að missa Teves auki stórkostlega á áhyggjur hans en fyrir missti liðið Miðjumanninn Patrick Vieira og kantmanninn Martin Petrow en einnig á sóknarmaðurinn Roquw Santa Cruz við hnémeiðsli að stríða.
Heimild: http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/teams/m/man_city/8527916.stm


