Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Litla Ljóðahátíðin

Listagilið á Akureyri
Listagilið á Akureyri

Um helgina mun fara fram ljóðahátíð í Populus Tremula sem er staðsett i Listagilinu á Akureyri. Þarna  er á ferðinni metnaðarfullt verkefni þar sem fram koma nokkur af fremstu ljóðskáldum landsins.

Dagskráin samanstendur af ljóðakvöldum á föstudags- og laugardagskvöld einnig verður málþing um ljóðlist á laugardaginn.

Að  hátíðinni standa þeir Atli Hafþórsson, Gunnar Már Gunnarsson og Hjálmar Stefán Brynjólfsson en þeir hafa stofnað félagið  Ljóðahámerin sem stendur að hátíðinni í nánu samstarfi við Menningarsmiðjuna Populus tremula.

Að sögn Gunnars fannst þeim félögum vanta upp á að bókmenntunum væri gerð nægilega góð skil í menningarflóru bæjarins og er  Litla Ljóðahátíðin framlag þeirra til að efla þann þátt. Gunnar segir það hafa gengið ótrúlega vel að fá styrktaraðila að hátíðinni og mikill áhugi sé fyrir hendi. Einnig hafi skáldin verið sérstaklega jákvæð og mjög vel gekk að fá hóp af okkar fremstu ljóðaskáldum i dag til að taka þátt. Vonast þeir félagar til þess að þetta geti orðið árlegur viðburður sem muni vaxa og dafna.

Þetta er ekki fyrsta ljóðahátíðin sem þeir standa fyrir því fyrir áramót héldu þeir Þjóðlegu Ljóðahátíðina í  samstafi við Nýlið sem er ljóðahópur í Reykjavík þá stefndu þeir saman ungskáldum að norðan og sunnan. Það verkefni var miklu minna í sniðum eða ein kvöldstund en  gekk svo vel að ákveðið var að halda áfram.

Þau sem koma fram eru: Eiríkur Örn Norðdahl, Ingunn Snædal, Jón Laxdal, Þórarinn Eldjárn, Gyrðir Elíasson, Kristín Ómarsdóttir, Aðalsteinn Svanur, Magnús Sigurðsson og Þorsteinn frá Hamri. Á málþinginu fjalla þeir Þorvaldur Þorsteinsson og Kristján Kristjánsson um ljóðagerð á 21. öld.



Mynd augnabliksins

p9301052.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 10
Samtals: 174392

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning