Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Lindin 15 ára

Afmælissöngurinn sunginn í beinni útsendingu.
Afmælissöngurinn sunginn í beinni útsendingu.

Það var mikið um gleði, veitingar og góða tónlist í húsnæði Hjálpræðishersins á Akureyri nú í dag. Þar fagnaði útvarpsstöðin Lindin 15 ára afmæli sínu. Lindin er kristin útvarpsstöð sem hefur verið starfandi síðan í mars 1995. Blaðamaður Landpóstsins skrapp í kaffi og ræddi við starfsmenn og aðra afmælisgesti.

Þrjú ár eru síðan Lindin opnaði lítið hljóðver á Akureyri. Í september 2009 flutti stöðin svo í núverandi húsnæði, á Hjálpræðishernum á Akureyri. Um 7% af efni Lindarinnar er tekið upp í hljóðverinu á Akureyri og þar af eru tvær beinar útsendingar í viku hverri.

Lindin er, sem fyrr segir, kristileg útvarpsstöð og markmið hennar er að breiða út boðskap vonar, kærleika og friðar. Dagskráin samanstendur af tónlist, viðtölum, bænastundum, hugleiðingum o.fl. Stöðin byggist á sjálfboðavinnu og að sögn Sheilu Fitzgerald, framkvæmdarstjóra Lindarinnar, eru sjálfboðaliðarnir um 50-60 talsins. Ein vika á ári er helguð fjáröflun og í ár er það næsta vika, 8.-13. mars.

Bein útsending var frá afmælisveislunni og meðal annars var afmælissöngurinn sunginn í beinni útsendingu.

Lindin nær til um 85-90% landsmanna og hér á Akureyri næst stöðin á tíðninni 103,1.


- HH



Mynd augnabliksins

img_8682.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning